Höfuðborgarsvæðið og nágrenni

Hlíf - umsjón með tæmingu dánarbús

Við tökum við þegar aðstandendur hafa valið sitt og skilum rýminu tæmdu og tilbúnu undir þrif.

Fyrirfram samþykkt verð - engin óvænt gjöld.

Bjart og rólegt rými, tilbúið undir þrif eftir tæmingu dánarbús

Að tæma dánarbú getur tekið 40–60 klukkustundir

Að tæma dánarbú sjálf getur tekið 40–60 klukkustundir og kostað hundruð þúsunda þegar allt er talið - gjöld hjá Sorpu, leiga á flutningabíl, eldsneyti, kassar, pokar og aðstoð við að bera.

Ferlið er oft umfangsmikið og getur verið erfitt að halda utan um, skipuleggja og skipta vinnunni á milli aðstandenda.

Hlíf tekur við og skilar rýminu tæmdu og tilbúnu undir þrif á einum til tveimur dögum með fyrirfram samþykktu verði.

Hvernig virkar þjónustan

Þrjú einföld skref

Skipulagðir munir á borði - það sem aðstandendur velja að halda
01

Þið veljið það sem þið viljið eiga

Aðstandendur taka frá þá muni sem þeir ætla að halda. Hlíf tekur við því sem eftir stendur.

Vandlega valdir vintage munir á borði - mat á seljanlegum munum
02

Við metum eigulega muni

Ef seljanlegir munir finnast getur Hlíf keypt þá af aðstandendum fyrir eingreiðslu upp að 50.000 kr sem dregst frá heildarverði þjónustunnar.

Tómt og bjart rými, tilbúið undir þrif
03

Við tæmum rýmið

Hlíf sér um flokkun, pökkun, flutning og förgun og skilar rýminu tæmdu og tilbúnu undir þrif.

Af hverju Hlíf?

Fagleg umsjón sem þú getur treyst

  • Skýrt ferli frá upphafi til enda

    Þú veist alltaf hvað er framundan og hver gerir hvað.

  • Fyrirfram samþykkt verð og engin óvænt gjöld

    Verð er samþykkt fyrirfram áður en vinna hefst.

  • Umsjón með öllu sem eftir er

    Flokkun, pökkun, flutningur og förgun, allt í einum pakka.

  • Rými skilað tómu og tilbúnu undir þrif

    Húsnæðið er klárt fyrir þrifaþjónustu eða sölu.

  • Fagleg umsjón, ekki ruslaflutningur

    Við göngum snyrtilega um og virðum heimilið.

  • Komdu munum í verð

    Það getur verið tímafrekt að koma verðmætum í verð, láttu Hlíf sjá um það fyrir þig.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fáðu tilboð

Segðu okkur frá verkefninu

Fylltu inn upplýsingar um verkefnið og við höfum samband við þig innan 24 klukkustunda með nánari upplýsingum og tilboði.

Er húsnæðið á hæð? *
Þarf að tæma fleira en húsnæði?
Hversu mikið dót er um að ræða?
Mjög lítiðMjög mikið
Hversu hreint er húsnæðið?
Mjög óhreintMjög hreint
Hefðir þú áhuga á að Hlíf meti hvort seljanlegir munir séu í rýminu og geri þér tilboð í þá?

Við höfum samband innan 24 klst með nánari upplýsingum og tilboði.